Sindra-Kjarval

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Sindra-Kjarval

Afmælisdagur:

11. febrúar 2001

Staðsetning:

Reykjavík

Um:

Hundastrákur

Tenglar

18.11.2006 21:19

Nóvember 2006

Mér er loksins búið að takast að fá ritarann minn til að skrifa fyrir mig eftir nokkurt hlé. Af mér er allt gott að frétta og lífið gengur sinn vana gang. Ég er búinn að vera mikið fyrir austan í sumar og hafa það gott. Ég er líka búin að eignast nýjan vin sem heitir Brúskur og er köttur. Fjölskylda mín ákvað að taka hann í fæði eftir að fyrri eigendur yfirgáfu hann. Brúskur býr ekki hjá okkur heldur uppi í hesthúsi þar sem hann er ekki húsköttur heldur hesthúsköttur. Þar á hann bæli og þar sér fjölskylda mín um að gefa honum að borða. Ég er hálffegin að hann býr ekki hjá okkur þar sem hann er frekar villtur og er ekkert sérstaklega hrifinn af mér. Til dæmis ræðst hann á mig og kýldi mig í trýnið þegar ég kyssti hann á nefið um daginn. Síðan þykist hann hafa einkarétt á systur minni þegar við förum að gefa honum og einokar hana svo ég kemst ekki að. Ég fyrirgef honum þetta alveg þar sem hann á engann að og okkur er að verða betur til vina. Ég er síðan farinn að hlakka til jólanna. Stóra systir mín er að spá í að kaupa á mig smóking fyrir jólin en það virðist vera eitthvað erfitt að finna hann. Hún bað því kærastann sinn að leita að honum í USA en honum finnst að ég eigi ekki að vera í fötum og er því eitthvað latur við að leita að sparifötum handa mér. Við skulum því bara sjá til hvort ég fari í jólaköttinn eða ekki. Meira um að seinna

Kveðja,

Kjarval

03.12.2005 18:37

Í prófum en og aftur

Hæ hæ

Það er svo mikið að gera hjá mér og Stínu systur, við erum nefnilega í prófum .  Ég tek auðvitað virkan þátt í próflestrinum með henni en stundum vil ég bara að hún leiki við mig. Þá kem ég með allt dótið mitt inn til hennar og læt tísta í öllu, sérstaklega honum Kolla mínum .  Ég skil samt ekki alveg afhverju hún Stína mín vill ekki alltaf leika við mig og dótið, eða þá fara í eltingaleik við mig.  Þegar Stína vill ekki leika við mig þá fer ég alltaf til mömmu og segi henni hvað Stína sé leiðinleg og þá vill mamma allt gera fyrir engilinn sinn og fer út með mig eða leikur við mig

Annars er lítið að frétta af mér nema ég er alltaf að plata mömmu og pabba og segja að ég sé svangur svo ég fái nammi, þetta virkar alltaf á þau hihi   en ég er samt kominn í smá aðhald fyrir jólin, því þá fæ ég svo mikið góðgæti, jólasteikur sem mamma eldar og líka spes sælgæti sem Einar kaupir handa mér í útlandinu... ohh hvað ég hlakka til. 

Jæja ætla að láta þetta nægja í bili, læt heyra í mér fljótlega eða þegar prófin eru búin

kv. Kjarval

 

23.10.2005 18:36

Kalt úti

Hæ hæ

Var að koma úr göngutúr með mömmu og Stínu, váhh hvað var kalt. Litlu tásurnar mínar voru svo kaldar að ég fór upp í sófa til pabba að hlýja mér þegar við komum heim.  Um helgina komu Ragna frænka mín Sómi frændi í heimsókn og fannst mér voða gaman að hitta þau.  Ég var mjög góður við Sóma og sýndi honum allt dótið mitt, en hann mátti samt ekki prófa það   Ég var meira að segja svo hræddur um hann Kolla minn að ég hætti snarlega við að fara út að pissa þegar ég fattaði að Sómi yrði inni hjá honum.  Stína sagði svo við mig að ég væri eins og öfundsjúkur krakki því hún mátti eiginlega ekki tala neitt við Sóma án þess að ég kæmi á fullu spani til hennar, en ég vil bara ekki að neinn taki hana Stínu mína frá mér  .

Jæja núna ætla ég að fara að hvíla mig með pabba uppi í sófa og passa hann vel, því karl greyið er lasinn og þá er nú gott að eiga góðan strák eins og mig

Kveðja Kjarval

23.10.2005 18:35

Próf

Hæ hæ

Váhh hvað er búið að vera mikið að gera hjá mér. Við Stína erum búin að vera í prófum og er ég búinn að vera ofsalega duglegur að hjálpa henni  Ég er búinn að fara svo seint að sofa undanfarið að mamma var farin að hafa áhyggjur af stráknum sínum, því ég svaf orðið svo mikið á daginn.  Núna er þetta allt að lagast og er ég orðinn mikið sprækari, enda tekur svo mikið á að vera í þessum prófum.  Í gær gerðum við Stína okkur svo glaðan dag og fórum í langan labbitúr.  Ohh hvað mér fannst gaman, ég var svo glaður og ánægður með hana Stínu mína að ég brosti allann tímann til hennar.  Á morgun ætlar Stína með mig til læknisins því hann sendi mér bréf um að ég þyrfti að koma til hans í sprautur .  Ég er svo feginn að Stína ætlar með mér því ég er stundum pínu hræddur við læknana eftir að ég fór í aðgerðina og svo gefur hún mér líka alltaf nammi þegar ég er búinn

Jæja núna ætla ég að plata mömmu til að fara út að labba með mig, því hún var að koma heim úr vinnunni.  Læt heyra frá mér þegar ég er búinn að hitta læknirinn.

Ykkar Kjarval

23.09.2005 18:34

Köben

Hæhæ

Nú er svolítið síðan þið heyrðuð í mér síðast.  Mamma og pabbi fóru til Kaupmannahafnar og voru heila viku.  Stína og Halldóra kíktu svo til þeirra í nokkra daga en ég fékk ekki að fara með.  Einar hennar Halldóru passaði mig og afi Jón kíkti líka á mig.  Mér fannst ágætt að vera í pössun hjá þeim en ég saknaði mömmu, pabba og Stínu svo mikið að ég var ekki alveg eins og ég átti að mér að vera.  Ég var svo athyglissjúkur að Einar mátti ekki fara í sturtu eða á klósettið án þess að ég færi að gráta.  Stína kom svo heim á undan mömmu og pabba og þá varð ég svo glaður að ég ætlaði aldrei að hætta að kyssa hana.  Ég svaf svo hjá henni alla nóttina og passaði hana voða vel, en ég var alltaf að athuga hvort hún andaði ekki og svo smellti ég á hana mörgum kossum :)  Mamma og pabbi komu svo loksins heim í gær og ég var svo glaður að ég ætlaði aldrei að hætta að fagna þeim.  Þau voru líka voða glöð að sjá mig, og sagðist pabbi hafa saknað mín ótrúlega mikið.  Ég skil samt ekki afhverju ég fæ ekki að fara með þeim næst, því þau sakna mín alltaf svo mikið og ég þeirra þegar þau fara svona í frí. 

Núna er afi Jón að kom í mat til okkar svo ég þarf að fara að hjálpa mömmu að elda, en hún laumar alltaf einhverju góðgæti til mín á meðan við eldum.  Kannski fæ ég dásamlega nammið sem Einar keypti handa mér í útlandinu um daginn, en hann er alltaf svo góður við mig. 

Læt heyra frá mér fljótlega

ykkar Kjarval

 

18.09.2005 18:33

Haustlitaferð

Hæhæ

Ég var að koma heim úr haustlitaferð með fjölskyldunni.  Það var voða gaman en við fórum á Þingvelli og síðan fórum við í sveitna okkar að kíkja á hestana.  Fífa hestastelpa var búin að vera óþekk, en hún hafði hoppað yfir griðinguna.  Ég hljóp auðvitað á fullu til hennar þegar ég sá hana og skammaði hana voða mikið.  Hún hlustaði samt eiginlega ekkert á mig og hélt bara áfram að borða.  Síðan hjálpaði ég mömmu að gróursetja nokkrar aspir, en hún er alltaf að setja niður tré.  Þegar við höfðum sett niður fullt af trjám fórum við loksins heim.  

Núna er ég eitthvað slappur, en ég vaknaði í nótt með gubbupest.  Stína vaknaði við ég var að ýta í hana og láta hana vita hvað hafði gerst.  Hún var voða góð við mig og leyfi mér að kúra hjá sér þar til við fórum á fætur.  Núna ligg ég uppí í sófa að hafa það dásamlegt, en mamma vill að ég hvíli mig bara í dag. 

Ég læt heyra í mér þegar ég er orðinn góður

ykkur Kjarval   

    

 

14.09.2005 18:31

Skólinn byrjaður

Hæ hæ    

Það er búið að vera nóg að gera hjá mér undanfarið.  Skólinn er byrjaður hjá okkur Stínu og erum við alltaf að læra, líka á nóttunni þegar mamma og pabbi sofa og er ég orðinn dauðþreyttur á þegar við förum loksins að sofa.  Stína er samt svo góð við mig að ég vil alltaf vaka með henni því við  förum oft út að labba seint á kvöldin eða þá að við leikum okkur með Kolla.   Um daginn fór ég  svo með mömmu í berjamó  og var það æðislegt, mér finnst ber svo góð :)  Mamma átti samt í smá vandræðum með mig því ég stal alltaf berjunum sem hún var að tína, það endaði svo á því að mér var orðið annsi illt í maganum svo að við fórum heim.  Mamma segis ekki ætla með mig aftur í berjamó fyrr en ég hætti að borða ber, en ég hlusta ekki á hana því hún er alltaf að stríða mér.

Jæja núna er ég að fara að labba með Stínu svo ég læt heyra betur í mér seinna

Ykkar vinur Kjarval

   

30.08.2005 18:30

Sumarfrí

Hæ allir!

Váa hvað það er orðið langt síðan það hefur verið skrifað fyrir mig hér í dagbókina. Ef við höldum áfram frá því sem frá var horfið þá var ég á leiðinni í sumarfrí með mömmu og pabba. Sumarfríð gekk vel og við náum að vera í heila viku upp í bústað án verulegrar truflunar. Það var mjög fínt enda nóg að gera í sveitinni eins og alltaf. Síðan hefur lífð bara gengið sinn vanagang með tilheyrandi gönguferðum og bíltúrum með pabba. Stína fór reyndar til útlanda í viku og ég saknaði hennar mjög mikið. Ég var alltaf að leita að henni á meðan hún var í burtu en kom Halldóra kom regulega í heimsókn og reyndi að gera eitthvað með mér í staðinn. Við vorum því dugleg að labba og fórum einu sinni út að labba með Agnesi og Affý vinkonu minni. Það var mjög gaman enda finnst mér Affý fín stelpa. Ég er alltaf að reyna að fá pabba til að labba með mér á kvöldin. Í gær var pabbi til dæmis háttaður þegar ég birtist í svefnherberginu og horfði á hann eins aumingjalega og ég gat. Það virkaði fínt hjá mér, pabbi fékk samviskubit, fór á fætur og við löbbuðum litla hringinn minn. Ég vil neflilega labba bæði með mömmu og stelpunum á daginn og pabba á kvöldin. Mér finnst að pabba veiti ekki af því að labba enda hefur það sannað sig að hann bætir á sig kílóum þegar við löbbum ekki regulega. Annars er ekkert meira að frétta í bili nema að ég ætla að biðja stelpurnar um að skrifa regulega fyrir mig í vetur.

Kveðja,

Kjarval

18.07.2005 00:24

Váaa fékk fullt af nammi

Hæ allir!

Oh, ég held að ég sé heppnasti hundur í heimi. Hann Einar var sko að koma frá USA og keypti fyrir mig hvorki meira né minna en 3,2 kg af uppáhalds hundanamminu mínu. Það er svo ódýrt þar að mamma biður hann stundum um að kippa með sér nokkrum pokum þegar hann flýgur þarna út. Ég fékk að sjálfsögðu eitt nammi, þegar Einar kom með birgðirnar, og síðan fórum ég, hann og Halldóra út að labba saman. Þau fá mig stundum lánaðann, enda má Halldóra ekki koma í heimsókn öðru vísi en að ég stilli mér upp við þvottahúsdyrnar og horfi á hana biðjandi augum. Sem betur skilur Halldóra mig alveg og fer oftast nær út að labba með ,ig. Ég fæ líka stundum að heimsækja hana og Einar í blokkina og þá finnst mér skemmtilegast að sitja úti á svölum og horfa yfir hverfið. Þau eru síðan  frekar löt við að sópa, sem þýðir að það leynist stundum cheerious og popp á gólfinu hjá þeim, mér til mikillar ánægju. Amma Bettý átti síðan afmæli í dag, þannig að mamma hélt fyrir hana veislu. Það komu nokkrir gestir og þar á meðal voru mamma og pabbi hans Patta frænda míns. Veislan  heppnaðist vel. Amma Bettý var frekar hress, en hún býr á elliheimili og er í hjólastól. Ég hef mikinn áhuga á ömmu og reyni að vera góður við hana, en á það þó til að vera fyrir þegar verið er að keyra hana í hjólastólnum. Á morgun ætla mamma og pabbi svo að fara í sumarfrí í heila 3 daga. Ég sé það nú gerast. HEHE. Þau eru neflilega bæði gift vinnunni og reynsla síðustu ára er sú að síminn hringir látlaust og pabbi fær engann frið. Við mamma ætlum alla vega að njóta lífsins og hafa það gott. Meira um það síðar.

Kveðja,

Ykkar Kjarval

 

07.07.2005 22:17

Hæ hæ!

Hann Stígur vinur minn kom í heimsókn til okkar með hann Úlf í dag. Okkur kom bara vel saman. Ég var samt pínu öfundsjúkur, enda vanur að vera fá alla athyglina. Ég vældi því pínu þegar Halldóra var að halda á Úlfi. Ég sýndi honum líka kóngulóna mína og kyssti hann á hendina. Það virðist því stefna í að við verðum ágætis vinir.

Kveðja,

Kjarval

06.07.2005 16:48

Hæ allir!

Jæja, nú er ég núkominn heim úr pössun frá henni Helgu ræktandanum mínum. Pabbi, mamma og Stína skelltu sér til London til að heimsækja hana Halldóru og ég varð að vera eftir heima. Ég var mjög sár yfir því og fór í orðsins fyllstu merkingu að gráta þegar ég komst að því að mér væri ekki boðið með, þar sem ég hef heyrt að hundar í London þurfi ekki að vera í bandi, geti tekið stætó og ferðast í lestum. Ég sá mig alveg í anda gera það og fara á pöbbinn með pabba. Mig langaði líka að fara með til að æfa mig í enskunni en ég er mjög klár í henni, þar sem fyrrverandi eigendur mínur voru bandarískir. Í staðinn fyrir að fara til London sagði mamma mér að ég færi í sumarbúðir til hennar Helgu, hundanna hennar og kattana. Mér fannst það ekki leiðinlegt, enda var ég ofsa kátur að hitta öll þessi dýr og pabbi átti í mestum vandræðum með að ná athygli minni til að kveðja mig.  Ég passaði vel inn í hópinn og okkur Stjörnu kom sérstaklega vel saman. Ég var hjá þeim í viku en síðan keyrði Helga mig heim. Mamma, Pabbi og Stína voru mjög glöð að fá mig aftur. Þau höfðu keypt fyrir mig matardall með hundamyndum og risastóra kónguló sem tístir í, af því að ég var svo góður. Mamma sér núna hálfpartinn eftir að hafa gefið mér kóngulóna, þar sem ég gef henni engann  frið til að vinna fyrir tísti í kóngulónni, sem skírð var Kolli af mér og Stínu. Ég fékk líka fleiri Hemma frá Halldóru, en það eru svona bangsar í lífvarðabúningum hennar hátignar, sem ég er mjög hrifinn af. Við Stína og Halldóra fórum síðan út að labba með bolta og tókum nokkarar myndir sem komnar eru inn á síðuna mína.

Kveðja,

Ykkar Kjarval og kóngulóin

  • 1
Flettingar í dag: 119
Gestir í dag: 28
Flettingar í gær: 737
Gestir í gær: 151
Samtals flettingar: 20535
Samtals gestir: 7100
Tölur uppfærðar: 18.6.2025 15:15:09