06.07.2005 16:48
Hæ allir! Jæja, nú er ég núkominn heim úr pössun frá henni Helgu ræktandanum mínum. Pabbi, mamma og Stína skelltu sér til London til að heimsækja hana Halldóru og ég varð að vera eftir heima. Ég var mjög sár yfir því og fór í orðsins fyllstu merkingu að gráta þegar ég komst að því að mér væri ekki boðið með, þar sem ég hef heyrt að hundar í London þurfi ekki að vera í bandi, geti tekið stætó og ferðast í lestum. Ég sá mig alveg í anda gera það og fara á pöbbinn með pabba. Mig langaði líka að fara með til að æfa mig í enskunni en ég er mjög klár í henni, þar sem fyrrverandi eigendur mínur voru bandarískir. Í staðinn fyrir að fara til London sagði mamma mér að ég færi í sumarbúðir til hennar Helgu, hundanna hennar og kattana. Mér fannst það ekki leiðinlegt, enda var ég ofsa kátur að hitta öll þessi dýr og pabbi átti í mestum vandræðum með að ná athygli minni til að kveðja mig. Ég passaði vel inn í hópinn og okkur Stjörnu kom sérstaklega vel saman. Ég var hjá þeim í viku en síðan keyrði Helga mig heim. Mamma, Pabbi og Stína voru mjög glöð að fá mig aftur. Þau höfðu keypt fyrir mig matardall með hundamyndum og risastóra kónguló sem tístir í, af því að ég var svo góður. Mamma sér núna hálfpartinn eftir að hafa gefið mér kóngulóna, þar sem ég gef henni engann frið til að vinna fyrir tísti í kóngulónni, sem skírð var Kolli af mér og Stínu. Ég fékk líka fleiri Hemma frá Halldóru, en það eru svona bangsar í lífvarðabúningum hennar hátignar, sem ég er mjög hrifinn af. Við Stína og Halldóra fórum síðan út að labba með bolta og tókum nokkarar myndir sem komnar eru inn á síðuna mína. Kveðja, Ykkar Kjarval og kóngulóin |