Sindra-Kjarval

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Sindra-Kjarval

Afmælisdagur:

11. febrúar 2001

Staðsetning:

Reykjavík

Um:

Hundastrákur

Tenglar

18.07.2005 00:24

Váaa fékk fullt af nammi

Hæ allir!

Oh, ég held að ég sé heppnasti hundur í heimi. Hann Einar var sko að koma frá USA og keypti fyrir mig hvorki meira né minna en 3,2 kg af uppáhalds hundanamminu mínu. Það er svo ódýrt þar að mamma biður hann stundum um að kippa með sér nokkrum pokum þegar hann flýgur þarna út. Ég fékk að sjálfsögðu eitt nammi, þegar Einar kom með birgðirnar, og síðan fórum ég, hann og Halldóra út að labba saman. Þau fá mig stundum lánaðann, enda má Halldóra ekki koma í heimsókn öðru vísi en að ég stilli mér upp við þvottahúsdyrnar og horfi á hana biðjandi augum. Sem betur skilur Halldóra mig alveg og fer oftast nær út að labba með ,ig. Ég fæ líka stundum að heimsækja hana og Einar í blokkina og þá finnst mér skemmtilegast að sitja úti á svölum og horfa yfir hverfið. Þau eru síðan  frekar löt við að sópa, sem þýðir að það leynist stundum cheerious og popp á gólfinu hjá þeim, mér til mikillar ánægju. Amma Bettý átti síðan afmæli í dag, þannig að mamma hélt fyrir hana veislu. Það komu nokkrir gestir og þar á meðal voru mamma og pabbi hans Patta frænda míns. Veislan  heppnaðist vel. Amma Bettý var frekar hress, en hún býr á elliheimili og er í hjólastól. Ég hef mikinn áhuga á ömmu og reyni að vera góður við hana, en á það þó til að vera fyrir þegar verið er að keyra hana í hjólastólnum. Á morgun ætla mamma og pabbi svo að fara í sumarfrí í heila 3 daga. Ég sé það nú gerast. HEHE. Þau eru neflilega bæði gift vinnunni og reynsla síðustu ára er sú að síminn hringir látlaust og pabbi fær engann frið. Við mamma ætlum alla vega að njóta lífsins og hafa það gott. Meira um það síðar.

Kveðja,

Ykkar Kjarval

 

Flettingar í dag: 137
Gestir í dag: 37
Flettingar í gær: 737
Gestir í gær: 151
Samtals flettingar: 20553
Samtals gestir: 7109
Tölur uppfærðar: 18.6.2025 19:46:06