18.09.2005 18:33
Haustlitaferð
Hæhæ
Ég var að koma heim úr haustlitaferð með fjölskyldunni. Það var voða gaman en við fórum á Þingvelli og síðan fórum við í sveitna okkar að kíkja á hestana. Fífa hestastelpa var búin að vera óþekk, en hún hafði hoppað yfir griðinguna. Ég hljóp auðvitað á fullu til hennar þegar ég sá hana og skammaði hana voða mikið. Hún hlustaði samt eiginlega ekkert á mig og hélt bara áfram að borða. Síðan hjálpaði ég mömmu að gróursetja nokkrar aspir, en hún er alltaf að setja niður tré. Þegar við höfðum sett niður fullt af trjám fórum við loksins heim.
Núna er ég eitthvað slappur, en ég vaknaði í nótt með gubbupest. Stína vaknaði við ég var að ýta í hana og láta hana vita hvað hafði gerst. Hún var voða góð við mig og leyfi mér að kúra hjá sér þar til við fórum á fætur. Núna ligg ég uppí í sófa að hafa það dásamlegt, en mamma vill að ég hvíli mig bara í dag.
Ég læt heyra í mér þegar ég er orðinn góður
ykkur Kjarval