23.09.2005 18:34
Köben
Hæhæ
Nú er svolítið síðan þið heyrðuð í mér síðast. Mamma og pabbi fóru til Kaupmannahafnar og voru heila viku. Stína og Halldóra kíktu svo til þeirra í nokkra daga en ég fékk ekki að fara með. Einar hennar Halldóru passaði mig og afi Jón kíkti líka á mig. Mér fannst ágætt að vera í pössun hjá þeim en ég saknaði mömmu, pabba og Stínu svo mikið að ég var ekki alveg eins og ég átti að mér að vera. Ég var svo athyglissjúkur að Einar mátti ekki fara í sturtu eða á klósettið án þess að ég færi að gráta. Stína kom svo heim á undan mömmu og pabba og þá varð ég svo glaður að ég ætlaði aldrei að hætta að kyssa hana. Ég svaf svo hjá henni alla nóttina og passaði hana voða vel, en ég var alltaf að athuga hvort hún andaði ekki og svo smellti ég á hana mörgum kossum :) Mamma og pabbi komu svo loksins heim í gær og ég var svo glaður að ég ætlaði aldrei að hætta að fagna þeim. Þau voru líka voða glöð að sjá mig, og sagðist pabbi hafa saknað mín ótrúlega mikið. Ég skil samt ekki afhverju ég fæ ekki að fara með þeim næst, því þau sakna mín alltaf svo mikið og ég þeirra þegar þau fara svona í frí.
Núna er afi Jón að kom í mat til okkar svo ég þarf að fara að hjálpa mömmu að elda, en hún laumar alltaf einhverju góðgæti til mín á meðan við eldum. Kannski fæ ég dásamlega nammið sem Einar keypti handa mér í útlandinu um daginn, en hann er alltaf svo góður við mig.
Læt heyra frá mér fljótlega
ykkar Kjarval