23.10.2005 18:35
Próf
Hæ hæ
Váhh hvað er búið að vera mikið að gera hjá mér. Við Stína erum búin að vera í prófum og er ég búinn að vera ofsalega duglegur að hjálpa henni Ég er búinn að fara svo seint að sofa undanfarið að mamma var farin að hafa áhyggjur af stráknum sínum, því ég svaf orðið svo mikið á daginn. Núna er þetta allt að lagast og er ég orðinn mikið sprækari, enda tekur svo mikið á að vera í þessum prófum. Í gær gerðum við Stína okkur svo glaðan dag og fórum í langan labbitúr. Ohh hvað mér fannst gaman, ég var svo glaður og ánægður með hana Stínu mína að ég brosti allann tímann til hennar. Á morgun ætlar Stína með mig til læknisins því hann sendi mér bréf um að ég þyrfti að koma til hans í sprautur
. Ég er svo feginn að Stína ætlar með mér því ég er stundum pínu hræddur við læknana eftir að ég fór í aðgerðina og svo gefur hún mér líka alltaf nammi þegar ég er búinn
Jæja núna ætla ég að plata mömmu til að fara út að labba með mig, því hún var að koma heim úr vinnunni. Læt heyra frá mér þegar ég er búinn að hitta læknirinn.
Ykkar Kjarval