Sindra-Kjarval

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Sindra-Kjarval

Afmælisdagur:

11. febrúar 2001

Staðsetning:

Reykjavík

Um:

Hundastrákur

Tenglar

18.11.2006 21:19

Nóvember 2006

Mér er loksins búið að takast að fá ritarann minn til að skrifa fyrir mig eftir nokkurt hlé. Af mér er allt gott að frétta og lífið gengur sinn vana gang. Ég er búinn að vera mikið fyrir austan í sumar og hafa það gott. Ég er líka búin að eignast nýjan vin sem heitir Brúskur og er köttur. Fjölskylda mín ákvað að taka hann í fæði eftir að fyrri eigendur yfirgáfu hann. Brúskur býr ekki hjá okkur heldur uppi í hesthúsi þar sem hann er ekki húsköttur heldur hesthúsköttur. Þar á hann bæli og þar sér fjölskylda mín um að gefa honum að borða. Ég er hálffegin að hann býr ekki hjá okkur þar sem hann er frekar villtur og er ekkert sérstaklega hrifinn af mér. Til dæmis ræðst hann á mig og kýldi mig í trýnið þegar ég kyssti hann á nefið um daginn. Síðan þykist hann hafa einkarétt á systur minni þegar við förum að gefa honum og einokar hana svo ég kemst ekki að. Ég fyrirgef honum þetta alveg þar sem hann á engann að og okkur er að verða betur til vina. Ég er síðan farinn að hlakka til jólanna. Stóra systir mín er að spá í að kaupa á mig smóking fyrir jólin en það virðist vera eitthvað erfitt að finna hann. Hún bað því kærastann sinn að leita að honum í USA en honum finnst að ég eigi ekki að vera í fötum og er því eitthvað latur við að leita að sparifötum handa mér. Við skulum því bara sjá til hvort ég fari í jólaköttinn eða ekki. Meira um að seinna

Kveðja,

Kjarval

Flettingar í dag: 137
Gestir í dag: 37
Flettingar í gær: 737
Gestir í gær: 151
Samtals flettingar: 20553
Samtals gestir: 7109
Tölur uppfærðar: 18.6.2025 19:46:06