Sindra-Kjarval

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Sindra-Kjarval

Afmælisdagur:

11. febrúar 2001

Staðsetning:

Reykjavík

Um:

Hundastrákur

Tenglar

Færslur: 2005 Júlí

18.07.2005 00:24

Váaa fékk fullt af nammi

Hæ allir!

Oh, ég held að ég sé heppnasti hundur í heimi. Hann Einar var sko að koma frá USA og keypti fyrir mig hvorki meira né minna en 3,2 kg af uppáhalds hundanamminu mínu. Það er svo ódýrt þar að mamma biður hann stundum um að kippa með sér nokkrum pokum þegar hann flýgur þarna út. Ég fékk að sjálfsögðu eitt nammi, þegar Einar kom með birgðirnar, og síðan fórum ég, hann og Halldóra út að labba saman. Þau fá mig stundum lánaðann, enda má Halldóra ekki koma í heimsókn öðru vísi en að ég stilli mér upp við þvottahúsdyrnar og horfi á hana biðjandi augum. Sem betur skilur Halldóra mig alveg og fer oftast nær út að labba með ,ig. Ég fæ líka stundum að heimsækja hana og Einar í blokkina og þá finnst mér skemmtilegast að sitja úti á svölum og horfa yfir hverfið. Þau eru síðan  frekar löt við að sópa, sem þýðir að það leynist stundum cheerious og popp á gólfinu hjá þeim, mér til mikillar ánægju. Amma Bettý átti síðan afmæli í dag, þannig að mamma hélt fyrir hana veislu. Það komu nokkrir gestir og þar á meðal voru mamma og pabbi hans Patta frænda míns. Veislan  heppnaðist vel. Amma Bettý var frekar hress, en hún býr á elliheimili og er í hjólastól. Ég hef mikinn áhuga á ömmu og reyni að vera góður við hana, en á það þó til að vera fyrir þegar verið er að keyra hana í hjólastólnum. Á morgun ætla mamma og pabbi svo að fara í sumarfrí í heila 3 daga. Ég sé það nú gerast. HEHE. Þau eru neflilega bæði gift vinnunni og reynsla síðustu ára er sú að síminn hringir látlaust og pabbi fær engann frið. Við mamma ætlum alla vega að njóta lífsins og hafa það gott. Meira um það síðar.

Kveðja,

Ykkar Kjarval

 

07.07.2005 22:17

Hæ hæ!

Hann Stígur vinur minn kom í heimsókn til okkar með hann Úlf í dag. Okkur kom bara vel saman. Ég var samt pínu öfundsjúkur, enda vanur að vera fá alla athyglina. Ég vældi því pínu þegar Halldóra var að halda á Úlfi. Ég sýndi honum líka kóngulóna mína og kyssti hann á hendina. Það virðist því stefna í að við verðum ágætis vinir.

Kveðja,

Kjarval

06.07.2005 16:48

Hæ allir!

Jæja, nú er ég núkominn heim úr pössun frá henni Helgu ræktandanum mínum. Pabbi, mamma og Stína skelltu sér til London til að heimsækja hana Halldóru og ég varð að vera eftir heima. Ég var mjög sár yfir því og fór í orðsins fyllstu merkingu að gráta þegar ég komst að því að mér væri ekki boðið með, þar sem ég hef heyrt að hundar í London þurfi ekki að vera í bandi, geti tekið stætó og ferðast í lestum. Ég sá mig alveg í anda gera það og fara á pöbbinn með pabba. Mig langaði líka að fara með til að æfa mig í enskunni en ég er mjög klár í henni, þar sem fyrrverandi eigendur mínur voru bandarískir. Í staðinn fyrir að fara til London sagði mamma mér að ég færi í sumarbúðir til hennar Helgu, hundanna hennar og kattana. Mér fannst það ekki leiðinlegt, enda var ég ofsa kátur að hitta öll þessi dýr og pabbi átti í mestum vandræðum með að ná athygli minni til að kveðja mig.  Ég passaði vel inn í hópinn og okkur Stjörnu kom sérstaklega vel saman. Ég var hjá þeim í viku en síðan keyrði Helga mig heim. Mamma, Pabbi og Stína voru mjög glöð að fá mig aftur. Þau höfðu keypt fyrir mig matardall með hundamyndum og risastóra kónguló sem tístir í, af því að ég var svo góður. Mamma sér núna hálfpartinn eftir að hafa gefið mér kóngulóna, þar sem ég gef henni engann  frið til að vinna fyrir tísti í kóngulónni, sem skírð var Kolli af mér og Stínu. Ég fékk líka fleiri Hemma frá Halldóru, en það eru svona bangsar í lífvarðabúningum hennar hátignar, sem ég er mjög hrifinn af. Við Stína og Halldóra fórum síðan út að labba með bolta og tókum nokkarar myndir sem komnar eru inn á síðuna mína.

Kveðja,

Ykkar Kjarval og kóngulóin

  • 1
Flettingar í dag: 270
Gestir í dag: 99
Flettingar í gær: 737
Gestir í gær: 151
Samtals flettingar: 20686
Samtals gestir: 7171
Tölur uppfærðar: 18.6.2025 20:50:38