Sindra-Kjarval

Arkiv

Um mig

Namn:

Sindra-Kjarval

Födelsedag:

11. febrúar 2001

Plats:

Reykjavík

Om:

Hundastrákur

Länkar

Blogghistorik: 2005 Denna post är låst. Klicka för att öppna.

30.08.2005 18:30

Sumarfrí

Hæ allir!

Váa hvað það er orðið langt síðan það hefur verið skrifað fyrir mig hér í dagbókina. Ef við höldum áfram frá því sem frá var horfið þá var ég á leiðinni í sumarfrí með mömmu og pabba. Sumarfríð gekk vel og við náum að vera í heila viku upp í bústað án verulegrar truflunar. Það var mjög fínt enda nóg að gera í sveitinni eins og alltaf. Síðan hefur lífð bara gengið sinn vanagang með tilheyrandi gönguferðum og bíltúrum með pabba. Stína fór reyndar til útlanda í viku og ég saknaði hennar mjög mikið. Ég var alltaf að leita að henni á meðan hún var í burtu en kom Halldóra kom regulega í heimsókn og reyndi að gera eitthvað með mér í staðinn. Við vorum því dugleg að labba og fórum einu sinni út að labba með Agnesi og Affý vinkonu minni. Það var mjög gaman enda finnst mér Affý fín stelpa. Ég er alltaf að reyna að fá pabba til að labba með mér á kvöldin. Í gær var pabbi til dæmis háttaður þegar ég birtist í svefnherberginu og horfði á hann eins aumingjalega og ég gat. Það virkaði fínt hjá mér, pabbi fékk samviskubit, fór á fætur og við löbbuðum litla hringinn minn. Ég vil neflilega labba bæði með mömmu og stelpunum á daginn og pabba á kvöldin. Mér finnst að pabba veiti ekki af því að labba enda hefur það sannað sig að hann bætir á sig kílóum þegar við löbbum ekki regulega. Annars er ekkert meira að frétta í bili nema að ég ætla að biðja stelpurnar um að skrifa regulega fyrir mig í vetur.

Kveðja,

Kjarval

  • 1
Antal sidvisningar idag: 978
Antal unika besökare idag: 4
Antal sidvisningar igår: 41
Antal unika besökare igår: 4
Totalt antal sidvisningar: 63355
Antal unika besökare totalt: 10535
Uppdaterat antal: 1.5.2026 14:30:25