Sindra-Kjarval

Archive

Um mig

Name:

Sindra-Kjarval

Birthday:

11. febrúar 2001

Location:

Reykjavík

About:

Hundastrákur

Links

Blog records: 2005 N/A Blog|Month_12

03.12.2005 18:37

Í prófum en og aftur

Hæ hæ

Það er svo mikið að gera hjá mér og Stínu systur, við erum nefnilega í prófum .  Ég tek auðvitað virkan þátt í próflestrinum með henni en stundum vil ég bara að hún leiki við mig. Þá kem ég með allt dótið mitt inn til hennar og læt tísta í öllu, sérstaklega honum Kolla mínum .  Ég skil samt ekki alveg afhverju hún Stína mín vill ekki alltaf leika við mig og dótið, eða þá fara í eltingaleik við mig.  Þegar Stína vill ekki leika við mig þá fer ég alltaf til mömmu og segi henni hvað Stína sé leiðinleg og þá vill mamma allt gera fyrir engilinn sinn og fer út með mig eða leikur við mig

Annars er lítið að frétta af mér nema ég er alltaf að plata mömmu og pabba og segja að ég sé svangur svo ég fái nammi, þetta virkar alltaf á þau hihi   en ég er samt kominn í smá aðhald fyrir jólin, því þá fæ ég svo mikið góðgæti, jólasteikur sem mamma eldar og líka spes sælgæti sem Einar kaupir handa mér í útlandinu... ohh hvað ég hlakka til. 

Jæja ætla að láta þetta nægja í bili, læt heyra í mér fljótlega eða þegar prófin eru búin

kv. Kjarval

 

  • 1
Today's page views: 346
Today's unique visitors: 3
Yesterday's page views: 41
Yesterday's unique visitors: 4
Total page views: 62723
Total unique visitors: 10534
Updated numbers: 1.5.2026 14:08:29